24.6.2022 | 09:12
Æskileg morgunrútína samkvæmt internetinu
Ég las pistil frá Röggu Nagla um daginn og varð steinhissa hvað hún þekkir mig vel. Ég meina, við höfum aldrei hist og ég held að hún viti ekki einu sinni hver ég er. En vá hvað hún þekkir mig vel. Ég ákvað að taka þessu sem hrósi og las pistilinn spjaldanna á milli. Mér leið samt pínu eins og það væri verið að njósna um mig, þvílík líkindi sem voru með pistlinum og mínu lífi. Þannig að ég ákvað að fara í samanburðarrannsóknir á þessum pistli og mínu lífi. Setti í bold frá Röggu og mitt svar kemur svo beint þarna undir.
Rumskar í rólegheitum klukkan fimm núll núll við vekjaraklukku sem lýsir rýmið smám saman og fuglasöngur ómar í hárréttu desibeli úr hátalaranum
Ég vakna klukkan fimm núll núll á virkum dögum við vekjaraklukkuna sem ég keypti hjá Nova. Elska hana því að hún er svo einföld og nóg að snúa henni við til að slökkva á henni. Veit ekki hvort að hún hefur Snús takka þar sem ég vel að vakna þegar klukkan hringir. Finnst Snús heimskulegt þar sem þú ert að eyða klukkutíma í að vakna ekki í staðinn fyrir að stilla klukkuna á þann tíma sem þú vilt vakna.
Býrð um rúmið og hendir rúmteppinu sem var keypt í jógaferðinni til Indlands
Ég bý um rúmið og set rúmteppið sem ég keypti í Epal á rúmið og 4 púða úr Ikea. Ég mun líklega aldrei eiga teppi frá Indlandi þar sem mig hefur aldrei langað til Indlands. Það er hins vegar á óskalistanum að fara í Yogaferð til Thailands eða Bali og þegar ég fer þá mun ég pottþétt kaupa rúmteppi úr lífrænni bómull sem er handofið í nálægu búddaklaustri og selt á lókal markaði. Á hverjum morgni mun ég hlakka til að búa um rúmið mitt þar sem þetta teppi mun vera stútfullt af minningum um frábæra ferð. Mér finnst amk svo góð tilfinning að sjá umbúið rúm þegar ég labba framhjá svefnherberginu mínu. Lætur mér finnast að ég hafi byrjað daginn á því að klára eitthvað og að herbergið taki vel á móti þegar ég fer að sofa.
Skokkar glaðlega fram á baðherbergi
Ég geng inn á baðherbergi. Það væri kjánalegt að skokka þangað þar sem það eru ekki nema 3 skref frá herberginu mínu fram á baðið og ég tel það auka hættuna á meiðslum að skokka áður en þú ert komin í gang. Eina skiptið sem ég skokka innanhús er þegar ég vakna á undan vekjaraklukkunni minni og gleymi að snúa henni við. Ég veit að ég yrði seint valin vinsælasta mamman ef ég færi út að skokka og krakkarnir myndu vakna við hana fimm núll núll á miðvikudegi. Ég sef reyndar út um helgar. Þá vakna ég yfirleitt ekki fyrr en sjö núll núll nema það hafi verið eitthvað teiti kvöldinu áður þá sef ég stundum til átta núll núll eða jafnvel níu núll núll. Ég þarf ekkert að sofa lengur þar sem ég fer yfirleitt heim ekki seinna en eitt núll núll. Það gerist yfirleitt ekkert markvert eftir eitt núll núll um helgar hvort sem er.Gallinn við að drekka ekki áfengi er að þolmörkin fyrir þeim sem innbyrða áfengi í miklu magni eru yfirleitt gufuð upp uppúr eitt núll núll.
Stórt glas af ísköldu vatni með kreistri sítrónu
Ég byrja alltaf daginn á 2 glösum af köldu vatni, drekk svo 2 glös eftir að ég kem inn af æfingu og áður en ég fæ mér morgunmat þá drekk ég eitt glas með vítamínunum. Ég toppa ég þetta með því að fá mér sítrónuvatn, kreisti hálfa sítrónu ofan í vatnsglas. Ég byrjaði alltaf daginn á sítrónuvatni en svo áttaði ég mig á því að það er ótrúlega gott að hita vatnið aðeins og taka lýsið með volgu sítrónuvatni í staðinn fyrir að drekka djús. Mæli eindregið með því. Ég drekk yfirleitt 3-4 l af vatni á dag og með morgunrútínunni er ég yfirleitt hálfnuð með vatnið. Algjör óþarfi að stressa sig á því að þetta sé hættulegt. Ég er ennþá á lífi. Mögulega kemur samt í ljós að þetta á eftir að drepa mig. Ég las það hjá vini mínum Google að ALLIR sem drekka vatn munu á einhverjum tímapunkti deyja. ALLIR.
Bursta tennur með kókostannbursta og lífrænu plastlausu tannkremi
Þetta var ágætis áminning að fara í Vistvera og kaupa betri tannbursta og tannkrem. Það tekur líklega jafnlangan tíma að bursta tennurnar með betri vörum og það er betra fyrir umhverfið. Ég er þekkt fyrir mikla tímastjórnun og þegar ég þarf að fara í sértækar verslanir þá kaupi ég yfirleitt slatta og þarf því ekki að fara nema 2var á ári til að fylla á lagerinn.
Hysja uppum sig þrýstibrækur og henda mannbroddum utanyfir splunkunýja Brooks hlaupaskó og strappa höfuðljósið utan um flísfóðraða buffið
Ég nota ekki þrýstibrækur en á frábærar hlaupabuxur frá NikeAir. Þær eru fullkomnar, nógu hlýjar á veturna og samt nógu kaldar fyrir sumarið. 2 stórir vasar á hliðunum fyrir síma og annað og svo vasi að aftan fyrir lyklana. Einnig eru þær með böndum þannig að þegar ég er extra mjó detta þær ekki niður um mig. Ég á ekki alltaf splunkunýja Brooks skó en þegar ég er nýbúin að kaupa þá þá jú á ég splunkunýja skó. Ég nota alltaf Brooks hlaupaskó á malbiki þar sem þetta eru einu skórnir sem ég fæ ekki beinhimnubólgu af og styðja samt vel við iljarnar á mér. Ég þarf ekki að nota höfuðljós því að þó að ég hlaupi snemma á morgnana þá er ég með upplýstan hlaupastíg sem er fullkominn. Ég á ekki flísfóðrað buff, verður of kalt með buff en ég á fína húfu.
Þegar ég las þessa setningu mannbrodda utanyfir hlaupaskó rann kalt vatn milli skinns og hörunds. Hvenær var þessi pistill skrifaður? Ætli það sé ennþá leyfilegt að vera á nagladekkjum á þessum árstíma eða yrði hlauparinn gripinn af Gísla Marteini á Ægissíðunni og tilkynntur til lögreglu? Ég þarf sem betur fer ekkert að hafa áhyggjur af því þar sem ég bý í Kópavogi og það má vera á nöglum í snjó. Hlaupaskórnir mínir hafa ákveðinn líftíma. Ég kaupi mér yfirleitt nýja utanvegaskó að vori og stundum duga þeir í 2 ár. Ég nota þá bæði í utanvegahlaup sem og fjallgöngur. Þegar botninn er farinn að grípa illa fer ég með þá í Eins og Fætur Toga og læt negla þá. Það er svo mikið snilld að eiga neglda hlaupaskó. Virkar jafnvel og broddar en miklu léttari og þægilegri.
Út að skokka í hálftíma
Eftir að ég fékk Covid hef ég þurft að breyta öllum æfingunum mínum og fór aftur til fortíðar. Ég þurfti að fara 3 ár aftur í tímann og bæði fækka æfingum sem og stytta þær og minnka álagið. Núna er rútínan þessi. Dagur 1 sund, dagur 2 hjól, dagur 3, hlaup og svo endurtekið út mánuðinn. Ég tók út lyftingar, ég tók út Yoga þar sem það var of mikið að taka 2 æfingar á dag. Mér finnst ég loksins vera komin á ágætisról og næ að lengja æfingarnar örlítið á hverjum degi.
Ég er ennþá að æfa fyrir hálfan járnkarl en ég er ekkert að stressa mig á þessu. Annað hvort get ég hann eða ekki. Ef ég get hann ekki þá er framundan 10 daga stelpufrí á Ítalíu og ég get litið á ferðina sem undirbúning fyrir næsta járnkarl sem ég fer þá í eftir ár.Löngu hætt að stressa mig á svona smámunum eins og hvort að ég geti klárað eitthvað sem ég ætlaði að gera. Ef þetta er ekki rétti tíminn þá kemur hann bara síðar. Í júlí ætla ég að bæta við YogaTeygjum og einni fjallgöngu á viku og fara að taka göngur eftir hjólið til að venja líkamann við að hreyfa sig eftir hjól. Í ágúst ætla ég svo að bæta við dansappi þar sem dans er einfaldlega skemmtilegasta hreyfingin sem ég veit um.
Taka ískalda sturtu eftir skokkið
Tek ekki kalda sturtu en er búin að setja á listann að fara á Kælinámskeið hjá Andra í haust eftir að ég klára járnkarlinn og þá reikna ég með að kaldar sturtur verði hluti af mínum lífstíl. Ég fer hins vegar alltaf í kalda pottinn eftir sund og er komin í 2 mínútur með það að markmiði að geta setið í 10 mínútur í kalda pottinum. Fín æfing fyrir Kælinámskeiðið. Ég hitti konu í kalda pottinum. Við tókum upp spjall. Henni svelgist aðeins á þessu plani mínu. 10 mínútur er alls ekki hollt. Nú sagði ég, hvers vegna er það. Það er bara of mikið. Of mikið hvernig. Hún hafði heyrt um eina konu sem fékk held ég bara hjartaáfall við það að vera of lengi í kalda pottinum, nú sagði ég, var hún eitthvað veik fyrir. Nei alls ekki, fór reglulega í sund. Jújú það er fullkominn mælikvarði á heilbrigði að fara reglulega í sund. Ég elska að heyra þessar sögur. Sögur af alheilbrigðu fólki sem dó þegar það fór út að hlaupa eða hjóla eða guð má vita hvað. Það var enginn sem hafði áhyggjur af því þegar ég var 95 kg. sófakartafla með óheilbrigðan lífstíl. Það kom enginn og sagði mér sögur af fólki sem var óheilbrigt og dó. Hins vegar þegar ég fer yfir strikið í hreyfingu eða einhverju sem öðrum finnst klikkað þá eru þessar sögur alltaf dregnar upp. Einu sinni heyrði ég sömu söguna þrisvar sinnum í sömu vikunni af manninum sem fór út að hlaupa og dó. Ég velti því stundum fyrir mér hver tilgangurinn sé með þessum sögum. Mér er samt alveg sama. Aðrir mega hafa allar þær skoðanir sem þeir vilja. Það er þeirra réttur. Ef þú ert hins vegar sérfræðingur í kulda og köldum pottum og getur komið með einhverja vísindalega sönnun þá hlusta ég sannarlega á þig. Þangað til brosi ég bara og segi: mér er alveg sama svo fór ég heim og googlaði þetta og Google segir að allt að 15 mínútur sé í fínu lagi.
Smyrja handarkrikana með matarsóda og kókosolíu
Hef ekki séð neina þörf á þessu, ég nota ekki einu sinni svitarolló.
Löðra skrokkinn með möndluolíu
Ég set oft góða olíu á mig beint eftir sturtu og þurrka hana svo af mér. Ég verð svakalega mjúk og fín eftir það og þetta tekur ekki nema eina mínútu. Ég keypti góða Avocado olíu í Krónunni sem kostar ekki mikið og er ekki í gleri. Mæli eindregið með því að prófa.
Sötra sellerídjús macha dufti, hörfræjum, spírúlína, hveitigrasi og haframjólk úr nýja NutriNinja blandaranum
Eitt af því fáa sem ég get ekki borðað er Sellerý. Finnst það eins og mold á bragðið. Ég fæ mér aldrei djús á morgnana. Ég byrja mína morgna annað hvort með góðri ommlettu eða Chiagraut. Ég æfi mikið og þarf að borða mikið. Ein stærstu mistök sem fólk gerir varðandi heilsuna er að borða of lítið. Eitt af því sem ég lærði í Clean hjá Greenfit var að drekka ekki ávextina mína heldur borða þá. Djúsar eru ekkert endilega hollir. Svo er líka spurning hvað þú borðar allan daginn. Ef þú byrjar daginn á því að fá þér sellerídjús og færð þér svo pylsu og kók í hádeginu og Pizzu um kvöldið er það þá sniðugt? Mín leið til að vera í lagi er að vera með ákveðið mataræði. Ég finn gífurlegan mun á bæði andlegri og líkamlegri heilsu ef ég vanda matarvalið. Það lærði ég hjá Greenfit og allar mælingar sýna það.
Jógadýnan handofin úr örtrefjum af munkum í Nepal lögð á parketlagt gólfið
Jógadýnan er keypt á Íslandi enda hef ég ekki ennþá farið til Nepal en ég er sannfærð um að þegar ég fer til Nepal þá mun ég kaupa mér eina handofna frá munkum. Á mínum bucketlista er að fara í klaustur í viku og stunda jóga, íhugun og þagnarbindindi. Það yrði líklega stærsta áskorunin sem ég get tekið, sleppa símanum og þegja í viku. Ef þú veist um gott klaustur máttu endilega senda á mig skilaboð.
Kveikja í reykelsi og brenna myrru
Ég þoli ekki reykelsi eða myrru þannig að það er no no
Hugleiða í hálftíma
Ég hugleiði ekki mikið. Mín hugleiðsla er yfirleitt fólgin í því að fara út að ganga eða hlaupa rólega og hlusta á gott Podcast nú eða prjóna. Það er frábær hugleiðsla fólgin í því að prjóna.
Leggjast á nýju náladýnuna úr Eirberg
Ég elska náladýnuna frá Eirberg. Nota hana reyndar ekki oft, bara þegar ég fer í nudd þar sem nuddarinn á svona dýnu og ég get vottað að hún losar ótrúlega mikið um allt saman.
Öndunaræfingar eftir formúlu frá frægum hollenskum gúrú
Þegar ég byrjaði að æfa hlaup hjá Greenfit þá var það fyrsta sem ég þurfti að bæta var öndun. Með því að nota neföndun þá bætti ég heilsuna á allan hátt. Ég sef betur, ég hleyp betur og mér líður betur. Neföndun er allra meina bót og ég mæli eindregið með því að kynna sér það. Fullt af góðum hljóðbókum um málið og einnig hægt að googla æfingar. Eftir síðasta test hjá Greenfit sendi Már mér nokkrar öndunaræfingar til að iðka. Þær eru reyndar ennþá á bucketlistanum, sorry Már en ég get bara gert fáar breytingar í einu.
Hreyfiteygjur í lokin
Hreyfiteygjur eru nauðsynlegur hluti af mínu lífi. Ég fann að þegar ég var farin að teygja reglulega varð nuddið ekki svona vont. Ég fór í hjólaferð til Spánar um daginn og nuddarinn var heilsunuddari sem var nýbúin að nudda danska hjólaliðið. Hún gaf mér toppeinkunn í liðleika og hreyfileika og sagði að ég væri með húð eins og þrítug kona. Ég er 53 ára og elsti sonur minn er 26 ára. Mér fannst þetta vera ansi góð meðmæli með mínum lífstíl.
Skrifa þrjá hluti sem gefa lífinu gildi í þakklætisdagbókina
Ég skrifa ekki þakkardagbók. Hins vegar er það síðasta sem ég geri áður en ég sofna er að þakka fyrir það sem var jákvætt í dag. Ég áttaði mig á því að ég sef miklu betur þegar ég er þakklát en þegar ég er stressuð og fylli hausinn á mér með neikvæðum hugsunum.
Vekja síðan börnin blíðlega með kossi svo þau fari ekki í streituástand
Börnin mín eru 13, 20 og 26. Strákarnir myndu líklega fara í streituástand ef ég færi inn til þeirra og vekti þá með kossi. Hins vegar tók ég eftir gífurlegum mun á krökkunum þegar þau voru minni hvort að ég vakti þau með VILJIÐI KOMA YKKUR Á FÆTUR eða færi inn til þeirra, vekti þau rólega með kossi og knúsi og byrjaði daginn vel (ég var mun meira í fyrri pakkanum og skildi ekkert í því hvað börnin voru öfugsnúin á morgnana). Mæli með að prófa seinni aðferðina og sjá hverju hún skilar.
Öll fjölskyldan borðar hafragraut úr glúteinlausum höfrum, heimagerðri kasjúhnetumjólk, með kanil frá Sri Lanka, lífrænum eplum og chiafræjum
Þegar krakkarnir voru yngri þá var hefðbundinn morgunmatur hjá þeim hafragrautur með eplum, kanil og rúsínum. Ég er nýhætt að kaupa vörur frá MS og þessi yngsta er alveg til í að nota haframjólk í staðinn. Ég sá einmitt að það er komin vél til að búa til sína eigins möndlumjólk og er gífurlega spennt að prófa hana.
Engir símar við matarborðið
Við borðum á mjög mismunandi tímum þannig að þessi regla hefur ekki alveg gengið upp.Ég nota yfirleitt síma við morgunverðarborðið en er alltaf á leiðinni að bæta mig. Það er bara drepleiðinlegt að sitja ein við morgunverðarborðið og tala við sjálfa sig.Samt var ég að lesa að við hefðum gott að því að láta okkur leiðast þannig að kannski ætti ég að henda þessu á Bucketlistann, sef á þessu.
Nestið fyrir börnin tilbúið. Heimabakað rúgbrauð með avocado og harðsoðnu eggi pakkað í endurnýtanlegan vaxpappír
Mín vill helst ávexti og grænmeti í nesti. Ég set það í nestisbox þar sem það er hægt að nota það aftur og aftur.
Gengur frá leirtauinu í uppþvottavélina, þurrkar af borðinu, því það er svo gott að koma heim eftir vinnu í hreint eldhús
Guð minn góður já, var það sem ég hugsaði þarna. Það er dásamlegt að koma heim í hreint eldhús.
Villtur lax og brokkolí í kvöld
Lax og brokkóli er frábær kvöldmatur
Svo kom seinni hlutinn og ég hreinlega tengdi ekki við neitt í honum. Ég veit alltaf hvar bíllyklarnir mínir eru, þeir eru í skúffunni. Ég set upp matseðil fyrir vikuna og við verslum inn samkvæmt innkaupalista. Ég klára meira að segja vinnudaginn með því að setja upp planið fyrir morgundaginn. Æfingarnar mínar eru líka í plani. Síðast þegar ég átti ekki hreinar nærbuxur var 1990 þegar ég og Rebekka vinkona mín fórum í sex mánaða bakpokaferðalag um Suður Ameríku og þvottaaðstaða var ekki á hverju strái. Reyndar er oft hægt að bjarga sér eins og í góðri á eða læk.
Ég fór út að ganga og hlustaði á Podcast með Tim Grover og Tom Ferry. Tim Grover er algjör snillingur. Ég hitti hann fyrst á ráðstefnu 2018. Hann hefur þjálfað gífurlega mikið af topp íþróttamönnum og ég tengi ansi vel við það sem hann hefur að segja. Mitt tengslanet samanstendur af fólki sem segir einfaldlega: þú uppskerð eins og þú sáir. Þú getur orðið allt sem þú vilt ef þú einfaldlega leggur inn vinnuna. Ég veit hvað ég vil. Ég vil vera heilbrigð og hamingjusöm manneskja. Ég vil eiga gott samband við krakkana mína og mína nánustu. Ég vil ná mínum markmiðum hvort sem það er í vinnu eða einkalífi og ég vil eldast vel og geta gengið á Esjuna þegar ég verð áttræð. Ég næ ekki þeim markmiðum með því að snúsa vekjaraklukkuna mína eða fylgja planinu stundum. Ég þarf að fylgja því alltaf. Michael Jordan varð ekki bestur með því að mæta stundum á æfingar og gera lágmarkið. Hann varð bestur af því að hann ögraði sér og gerði meira en hann þurfti.
Hægt er að fylgjast með vegferð Ásdísar á instagram: asdisoskvals
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2022 | 19:50
Læknar líkamann með mataræði
Ég fór í mælingu hjá Greenfit um daginn. Svosum ekkert merkilegt, ég fer í mælingu hjá þeim á ca 6 mánaða fresti og þér að segja þá er líklega enginn viðskiptavinur hjá Greenfit sem hefur farið í jafnmargar blóðprufur og ég. Þarna sé ég að einhverjum svelgist á kaffinu. Æi þetta er svo dæmigerð Ásdís, þú ert svo manísk og ferð svo yfir strikið. Það þarf enginn að fara í mælingar hjá Greenfit á 6 mánaða fresti, ENGINN SEGI ÉG, eitthvað kostar það nú.
Ég er búin að vera á mínu lífstílsbreytingarferli í tæp 5 ár. Ég á 5 ára afmæli í ágúst. Það sem ég er búin að læra er að ég á einn líkama og það er enginn varalíkami. Þetta er lífið ekki tölvuleikur þar sem ég get gert reset all ef heilsan bilar. Það er ekkert RESET ALL í lífinu því miður. Þegar ég var í mínum yoyo lífstíl þá átti ég 3-4 stærðir af fötum inn í skáp. Fötin sem ég passaði í. AðeinsOfStóruÖryggisfötin mín til að nota þegar ég kem úr fríum og eftir jól og páska. Í fríum fannst mér tilvalið að tríta mig allan tímann því ég er jú í fríi og þá á að tríta sig. 3ja vikna frí á Spáni var skólabókardæmi um svona smá trít. Fötin sem voru í það þrengsta á mig sem ég var alveg að fara að passa í og svo fötin sem ég ætla pottþétt að komast í þegar allt gengur upp og lífið verður dásamlegt. Það kostar slatta að eiga 4 stærðir af fötum og það kostar líka helling að fara úr einni fatastærð í aðra, hvort sem það þarf að kaupa stærri eða minni föt. Síðustu 2 ár hef ég verið í jafnvægi. Ég er í sömu fatastærð og get leyft mér að kaupa mér nákvæmlega það sem mig langar í, ekki það sem ég passa í heldur það sem mig langar í og ég þarf miklu minna af fötum þar sem það er bara ein stærð af fötum í skápnum mínum. Það er gífurlegt frelsi sem fylgir því að vita að þú passar í fötin þín þó að þú skreppir til Spánar í 3 vikur (reyndar fer ég ekki í svona löng frí til Spánar lengur. Nenni ekki lengur að liggja á sólarbekk og tana í 3 vikur).
Eilífðarábyrð á bílnum
Þegar ég var 17 ára þá keypti ég mér bíl, glænýr úr kassanum. Gaurinn í umboðinu sagði: Þetta er frábær bíll. Það þarf ekkert að hugsa um hann. Þú þarft aldrei að fara með hann í skoðun. Þú þarft aldrei að láta laga neitt og þú getur sett hvaða eldsneyti sem er á hann, bensín, dísel, metan eða jafnvel flugvélabensín, skiptir engu. Þessi bíll þolir allt. Eilífðarábyrg á honum og hann mun aldrei bila. Hljómar þetta of gott til að vera satt. Það er hárrétt enda er þetta lygasaga frá upphafi til enda. Hins vegar kom ég fram við minn líkama í 48 ár eins og hann væri ódrepandi og myndi aldrei bila. Spáði voðalega lítið í því hvaða næringu ég setti ofan í hann og hvaða áreiti væri í gangi. Fannst samt allt ótrúlega ósanngjarnt ef líkami minn brást við næringu og hreyfingaleysi á annan hátt en ég vildi.
Verðskulda ég minni þjónustu en bíllinn minn?
Ég er á 4ra ára gömlum bíl. Ég er ekki mikil áhugamanneskja um bíla. Ég prófaði einu sinni að keyra Porsche jeppling. Ég fann ekki mikinn mun á mínum bíl og fína Porsche jepplingnum. Mögulega vantar bílagenið í mig. Þetta er 3ji bíllinn síðan 2004. Mér finnst að bílar þurfi að virka og keyra milli A-B áfallalaust. Hann þurfti að fara í þjónustuskoðun í vetur og það var kominn tími á eitthvað bremsudæmi þannig að það var lagað. Reikningurinn með þjónustuskoðun var í kringum 160.000. Stuttu seinna þurfti ég ný vetrardekk. Þar fauk annar 160.000 kall, svo þarf að smyrja hann reglulega og sitt lítið að hverju sem fellur til. Samt dettur engum í hug að spara sér þennan pening og keyra um á ósmurðum bíl með ónýtum vetrardekkjum og biluðum bremsum. Það gæti orðið vesen í vetur á leiðinni upp í Bláfjöll þegar það er glerhált á leiðinni, dekkin slitin og bremsurnar virka ekki. Ég þarf ekki að eiga bíl. Ég get tekið strætó, ég get tekið leigubíl en ég get ekki keypt annan líkama. Ef ég fer ekki með bílinn í þjónustuskoðanir þá fellur hann úr ábyrgð. Það er engin krafa um að ég fari í neina þjónustuskoðun. Samt hafa þessar 7 þjónustuskoðanir hjá Greenfit kostað minna en ég hef þurft að eyða í bílinn á einu ári. Kostnaður sem annars vegar er flokkaður undir nauðsyn en hins vegar lúxus og jafnvel eyðslusemi. Hvers vegna ætli það sé?
Fullkomið jafnvægi
Ég keyrði á vegg í fyrra, varð alveg orkulaus og brjálæðislega úrill. Eftir nokkra mánuði af því að reyna að finna út úr þessu skellti ég mér til læknis sem var fljótur að greina vandamálið. Frúin var komin á bullandi breytingarskeið. Hann vildi ekki setja mig á hormóna þar sem kólesterólið var svo hátt þannig að ég neyddist til að grípa til þeirra verkfæra sem Greenfit hafði kennt mér. Þegar ég byrjaði hjá Greenfit voru mín innri gildi í algjöru tjóni og ég tók 4ja mánaða Clean mataræði og svindlaði EKKERT. Ég var í fullkomnu jafnvægi bæði andlega og líkamlega. Ég svaf eins og engill og kolesterólið lækkaði úr 8.2 í 6.7 á 4 mánuðum. Þetta var því auðleyst. Ég þarf einfaldlega að lifa svona út lífið. Þann 13.maí 2021 ákvað ég að hætta að borða sykur út lífið.
Úps I did it again, söng Britney fyrir langa löngu. Já sko þann 13.maí 2021 hætti ég ekkert að borða sykur. Ég tók þessa ákvörðun en ég stóð ekki við hana. Ég og sykur erum í svona love-hate relationship. Ég elska að hata hann. Þetta gengur samt alltaf betur og betur og ég tek lengri og lengri tímabil þar sem ég er án sykurs. Ég hef komist að því að ég er best þegar ég sleppi sykri, hveiti, mjólkurvörur og geri. OMG Ásdís hvað borðar þú eiginlega þá, allt hitt. Ég borða t.d. ávexti, ABBBABBBABB segir þá góða fólkið. Ásdís þú veist að það sykur í ávöxtum. Ég drekk ekki gos en ég drekk Kristal, ABBBABBBABB segir þá góða fólkið, Sódavatn er líka gos. Það er allt í lagi. Góða fólkið má hafa alla þá skoðun sem það vill. Þetta snýst ekki um að fara eftir öllum þeim reglum og boðum og bönnum sem til eru. Þetta snýst um að finna mitt jafnvægi og ávextir í hófi eru aldrei að fara að valda mér sama tjóni og Pizza, kók og Snickers með smá snakki.
Svo ég geri orð Bon Jovi að mínum... Its my life
It's my life
It's now or never
I ain't gonna live forever
I just want to live while I'm alive
PacMan mætir á svæðið
Fyrir nokkrum mánuðum fékk ég ráðleggingu að til að ná ákveðnum árangri þá þyrfti ég að bæta kolvetnum við mataræðið. Ég ákvað að setja inn hrísgrjón og pasta. Á 3ja degi breyttist ég í PacMan og ryksugaði eldhúsið. Fyrst fékk ég mér eina kleinu og svo aðra. Fann múffu með sykurkremi sem ég gúffaði í mig með ískaldri mjólk og svo 1 hrískaka með súkkulaði og svo smá súkkulaði og svo döðlukaka og svo ís og niðursoðnir ávextir í eftirrétt og ekkert salat í kvöldmat. Daginn eftir þegar ég vaknaði með heilaþoku dauðans, þrútna liði, hálsbólgu og orkuleysi mundi ég hvers vegna ég forðast ákveðin kolvetni (s.s. hrísgrjón og pasta). Þetta var ekki ráðlegging frá Greenfit að bæta við kolvetnum og eftir þessa tilraun ákvað ég að það væri einfaldara að fylgja bara einum herra í mataræðinu.
Covid recovery
Ég fékk loksins Covid í lok janúar. Eins og með mælingar hjá Greenfit var ég mjög dugleg að láta kanna með Covid. Þríeykið talaði alltaf um að fara í test ef þú finndir fyrir einkennum og ég fann alltaf fyrir einkennum eftir sykur- og/eða hveitiát. Ég fann ekkert fyrir Covid en langtímaáhrifin urðu ansi hressileg. Núna er ég búin að vera í 4ra mánaða Covid Recovery. Ég er með gífurlega háan æfingapúls og hef nokkrum sinnum fallið í þá gryfju að halda að ég sé orðin góð og farið á fullt bara til að þurfa að leggja mig eftir æfingu og sleppa æfingu daginn eftir. Þegar ég sá að vinkona mín var með sama álagspúls eftir 3ja tíma 21 km PuffinRun og ég eftir 5 km á jafnsléttu sá ég að það þýddi ekkert að þrjóskast við þetta heldur fór 3 ár aftur í tímann og byrjaði upp á nýtt. Ég ræddi þetta við Má hjá Greenfit. Hann sagði mér að þau hefðu verið að koma af ráðstefnu um langtíma áhrif Covid og það væri komið í ljós að konur sem hefðu verið í mjög góðu formi fyrir Covid væru í meira mæli að glíma við langtíma áhrif en aðrir. Auðvitað var ég svo heppin að draga stutta stráið þarna. Ég ræddi við hann um járnkarlinn sem ég er skráð í í september. Við fórum yfir síðasta álagspróf. Það voru margir mjög jákvæðir þættir þarna.
Best í fitubrennslu
Ég er rosalega góð að brenna fitu. Hlutfall minna efnaskipta í hvíld er 81% fita og 19% kolvetni. Og ég er vel yfir meðaltali í efnaskiptahraða samanborið við aðra á sambærilegum aldri, hæð og þyngd og ég. Það stendur meira að segja að heilsa efnaskipta minna er mjög góð. Við skoðuðum síðasta hlaupaprófið sem ég tók hjá þeim. Það var líklega rólegasta prófið sem ég hef tekið þar sem ég þorði ekki að keyra mig út af ótta við að ég myndi þá vera orkulaus daginn eftir. Það er skrýtinn staður að vera á og stundum erfitt fyrir hausinn að minna sig stöðugt á að fara ekki of hratt, jafnvel þó að þér líði mjög vel á æfingunni þá er yfirleitt gjald að greiða eftir æfinguna. Samkvæmt síðasta hlaupaprófi þá er ég með frábæra fitubrennslu, svo góða að ég gæti næstum því tekið hálfan járnkarl án þess að næra mig, myndi bara fórna litlu fitubollunum mínum á altari járnkarlsins. Már benti á að ég væri mjög gott grunnform og ég ætti að fókusa á zone2 æfingar fram að járnkarli og reyna frekar að taka langar göngur um helgar frekar en harðar sprettæfingar. Mér finnst þetta ágætisplan og stefni ennþá á hálfan járnkarl.
Það er bara ein spurning sem ég er með í sambandi við þessa fitubrennslu. Mér finnst alveg vanta að það sé hægt að stjórna henni. Ég er t.d. með fullt af svæðum sem fitubrennslan virðist sleppa, s.s. maginn, innri lærin og mjaðmir á meðan fitubrennslan virðist fókusa helst á rass og brjóst. Halló, það þarf ekkert að brenna meira af þeim svæðum. Þau eru lokuð fyrir frekari brennslu. Ég mæli með að Greenfit finni leiðina til að beisla þessa fitubrennslu frekar og gera hana svæðisbundna.
Innri gildin að batna
Ég byrjaði hjá Greenfit eftir að hafa fengið rauða spjaldið í heilsunni. Ég var komin með gífurlega hátt kólesteról og blóðsykur, svo hátt að heimilislæknirinn minn vildi setja mig á lyf. Ég er svo lítið fyrir lyf og langaði ekkert að fara á þau, þannig að þegar Lukka hjá Greenfit sagði mér frá Clean mataræðinu ákvað ég að ég hefði engu að tapa og allt að græða. Stutta útgáfa var að ég missti 11 kíló á 4 mánuðum (fann nokkur aftur sem söknuðu mín mikið) og öll innri gildin snarbötnuðu. Þau bötnuðu svo mikið að læknirinn mælti með því að ég myndi bara halda áfram á þessari braut í staðinn fyrir að smella mér á lyf. Fannst nú að heilbrigðiskerfið hefði átt að gefa mér einhver verðlaun fyrir stórfelldan sparnað í lyfjakaupum.
Við Lukka fórum fyrir síðustu skýrsluna mína. Hún benti á að langtímaheilsan mín væri alltaf að batna en það væri augljóst á sýnunum hvernig ég er ströng í mataræðinu og hvenær ekki. Ég er búin að fara í 7 próf (stundum fer ég oftar en á 6 mánaða fresti ég þegar mig langar að sjá hvort að það sem ég er að gera sé að skila árangri). Blóðsykurinn minn er lægri en hann var í ágúst 2021 en hærri þegar ég var alveg Clean. Sama gildir um Kólesterólið. Það var við hættumörk þegar ég byrjaði en núna er það bara mjög hátt. Hins vegar er góða Kólesterólið búið að lagast það mikið að það er farið úr gulum í grænan og er til fyrirmyndar. Lifrin er í toppstandi og sama á við um D vítamín birgðirnar mínar. Hvítu blóðkornin skora til fyrirmyndar og bólgur í líkamanum hafa snarminnkað og komið úr hættumörkum í aðeins of hátt. Þetta er ekkert flókið eina sem ég þarf að gera er að borða Clean og þá er líkaminn í lagi.
Sykurpúkinn minn og þinn
Ég er með innri sykurpúka sem á stundum bágt. Ég finn samt að ég á alltaf auðveldar og auðveldar að hunsa vælið í honum og í raun það eina sem ég þarf að gera er að leyfa mér ekki smá. Smá verður alltaf meira hjá mér. Gamla ég fékk sér alltaf trít. Ég fór kannski út að ganga og var ótrúlega dugleg, gekk alveg 2 km og fannst þá tilvalið að verðlauna mig með súkkulaðisnúð og kókómjólk. Þú færð jú kraft úr kókómjólk. Ég velti því stundum fyrir mér hvað er að fá sér smá trít. Er það virkilega smá trít að gúffa í sig nammi og snakki. Bætir það eitthvað lífsgæðin? Er það trít að setja dísel á bensínbíl?
Ég las á dögunum að Helgi í Góu framleiði 100 tonn af nammi á mánuði og mest fyrir innanlandsmarkað. 100 tonn er ótrúlega stór tala. Þetta er bara Góa, svo eru allir hinir framleiðendurnir eftir og kexið, kökurnar, eftirréttirnir, sykruðu drykkirnir, mjólkurvörurnar og snakkið. Ég velti því stundum fyrir mér ætli sá tími komi að framtíðarkynslóðum finnist jafn fáranlegt að geta keypt nammi í búðum eins og að hafa getað keypt sígarettur í búðum. Ég drekk ekki áfengi en ég spyr mig stundum hvort að allur þessi sykur sé minna skaðlegur heildinni en áfengið sem má ekki selja í búðum?
Cleanlife.is
Ég og Axel Valur sonur minn höldum úti uppskriftarvefnum Cleanlife.is þar sem við setjum inn einfaldar uppskriftir sem eru sykur-hveiti og mjólkurlausar. Ég set inn mikið af okkar efni en einnig ef ég prófa girnilegar uppskriftir þá set ég þær inn líka. Ég setti reyndar inn 2 um daginn sem pössuðu ekki við það en krökkunum fannst þetta svo gott að ég vildi geyma þær uppskriftir á vísum stað.
Ef þú ert að glíma við sykurpúkann eða vilt bara laga aðeins til þá mæli ég alltaf með því að byrja á því að heyra í Greenfit. Þau eru með frábær Clean námskeið þar sem þú getur lært tökin og núllstillt þig. Án þeirra væri ég ekki á þeim stað sem ég er í dag og gæti ekki núllstillt mig sjálf. Þú hefur engu að tapa nema kannski verri heilsu og það er jú mikils virði.
Hægt er að fylgjast með vegferð Ásdísar á instagram: asdisoskvals
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)