Lenti í gifsi og fann sér kærasta

27.APRIL

 Þegar ég lenti í gifsi síðasta sumar og datt tímabundið út úr Landvættaprógramminu, fannst mér tilvalið að nýta tímann til að finna mér kærasta. Ég sá fram á marga vikna æfingahlé og hefði því nægan tíma í þetta verkefni. Ég var ekkert viss um að það myndi ganga vel. Ég hafði farið á mörg deit eftir að ég skildi og á tímabili lýsti ég því yfir að allir einhleypir karlmenn á Íslandi væru fávitar. Seinna kom í ljós að vandamálið lá mögulega mín megin. 

 

 

Þú ert alltof kröfuhörð til að finna þér kærasta!

„Þú verður að lækka standardinn. Nú, hvers vegna? Þú ert alltof kröfuhörð og finnur þér aldrei kærasta ef þú lækkar ekki standardinn. Já, sko mig vantar ekki kærasta þannig að þetta er allt í lagi. Ég veit alveg hvað ég vil og hann er ekki alveg í sjónmáli núna. Þetta er ekkert mál, þú breytir honum þegar þú ert búin að finna hann. Já, nei ómögulega, ég er orðin fimmtug og það myndi henta mér miklu betur að finna mann sem er fínn eins og hann er og ég þarf ekkert að laga.  Ég er einfaldlega of upptekin til að sinna uppeldi á fullorðnum mönnum“. Ef ég ætti þúsundkall fyrir hvert skipti sem mér var ráðlagt að lækka standardinn, að finna mér einhvern mann, að laga hann svo bara seinna, þá hefði ég getað keypt mér minn eigins mann. Ég hef aldrei skilið þessa þörf hjá öðrum að ráðleggja fólki óumbeðið hvernig það á að lifa lífinu og hvaða þarfir það hefur og hvað hentar því. Stundum hafði ég það á tilfinningunni að ég mætti vera einhleyp í ákveðin langan tíma þar til ég fór að verða frávik. Ég varð ein af þessum konum sem gat ekki fundið sér kærasta, sem var dæmd til að vera ein að eilífu, ALEIN.  Fólki finnst mjög gott að þú finnir sjálfa þig eftir skilnað. Frábært hjá þér að vera ein og finna þig heyrði ég oft. Svo liðu tvö ár og þá komu spurningarnar, ertu ekki að deita einhvern, nei, finn engan.  Já, þú meinar, ertu svona kröfuhörð? Svo kom ár þrjú.  Þá breyttist þetta í: hvað er að hjá þér, hvers vegna gengur þú ekki út? Uppáhaldið mitt var, þessi gaur, það er líklega eitthvað að hjá honum.  Nú hvers vegna? Hann er búinn að vera einhleypur í þrjú ár, það hlýtur að vera eitthvað að honum fyrst að engin vill hann. Já, þú meinar, ég er búin að vera einhleyp í tæp 4 ár :)

Afhverju gerist þú ekki lesbía?

Það er dásamlegt hversu margir eru duglegir að leysa vandamál sem eru ekki til staðar. Það barst einhvern tímann sem oftar í tal að ég væri einhleyp og jú það gengi ekkert að finna mér mann (yfirleitt vegna þess að ég var ekkert markvisst að leita). „Ef þú getur ekki fundið þér mann, hvers vegna gerist þú ekki lesbía? Ha, gerist lesbía, já prófar að spila með hinu liðinu? Hinu liðinu, á ég að skipta úr Breiðablik yfir í HK?“ Fyrst þegar ég heyrði þessa tillögu varð ég pínu móðguð. Er eitthvað að mér? Finnst viðkomandi í alvörunni að það finnist ekki einn gagnkynhneigður karlmaður sem gæti haft áhuga á mér. Ef svo er, hvers vegna ætti einhver kona frekar að hafa áhuga á mér. Ég á mikið af samkynhneigðum vinum. Þeim fannst þetta frekar fyndið. Ásdís mín, ef potturinn af gagnkynhneigðum karlmönnum er lítill þá get ég lofað þér að samkynhneigði potturinn er töluvert minni. Þessi óumbeðnu ráð komu í bunkum. Ansi mörgum fannst að ég ætti að gerast lesbía,.Allt til að ganga út. Mínar þarfir og langanir skiptu ekki öllu máli þarna. Lykilatriðið var þú verður að ganga út. „Ég hugsaði hvað þetta er súrealískt. Hvernig virkar þetta? Set ég í calendar hjá mér, bóka kl. 15:00 á föstudaginn, gerast lesbía“. Fyrst að það væri svona auðvelt mál þá ákvað ég að það væri best að setja líka niður, verða 1.75 m, 70 kg, fjólublá augu og fá þennan fallega brúna húðlit sem Whitney Houston var með. Ég held að það sé alveg jafn auðvelt að hækka um 10 sm eins og að skipta um kynhneigð. En það er bara mín persónulega skoðun.

Ertu virkilega á þessu Twitter dæmi?

„Ertu virkilega á þessu Twitter dæmi heyrði ég reglulega. Nei, ég er ekki á Twitter. Ég er á Facebook, Snapchat, Instagram, LinkdeIn og skoða stundum Pinterest, það er alveg nóg. Já, ertu ekkert að deita. Ha deita, jú annað slagið.  Ertu þá ekki á Twitter? Twitter, ertu að meina Tinder? Já eða það. Jú, ég fer reglulega þarna inn, en það eru bara eintómir fávitar þarna inni“. Í rúmt ár var það viðhorfið mitt.“ Allir einhleypir karlmenn á Íslandi eru fávitar. Fólki fannst ég full dómhörð þannig að ég breytti þessu í 80% af karlmönnum sem ég hef hitt í gegnum Tinder eru fávitar. Ennþá ogguponuspínulítið dómhart. Ég var að ræða þetta við fasteignaþjálfarann minn í Bandaríkjunum. Hann sagði, Ásdís er möguleiki á að þú sért vandamálið. Getur virkilega verið að ALLIR einhleypir karlmenn á Íslandi séu fávitar. Það er ein sameiginleg breyta í þessu máli og það ert þú. Ég hugsaði, „dj. fáviti getur maðurinn verið“. Þeir sem hafa verið að lesa bloggin mín eru mögulega búnir að tengja að gamla ég, þessi sem hafði allt á hornum sér, var ekkert svakalega deithæf. Það kom seinna í ljós að megnið af karlmönnum á Tinder eru frábærir. Þú færð einfaldlega það sem þú sendir frá þér. Ég ákvað því að taka mér langa deitpásu og hreinsa upp gamla drauga og endurstilla mig. Það versta sem hægt er að gera er að reyna að fara í nýtt samband með farangur úr fortíðinni. Það er ekkert ólíkt því að ætla að ganga upp Esjuna en byrja á því að fylla 50 lítra bakpoka af steinum.  Mögulega hægt en óþarflega erfitt.

Hvað er Ghosting?

Það getur alveg tekið á taugarnar að vera á markaðnum, og nei þá er ég ekki að tala um fasteignamarkaðnum sem ég er búin að vera að vinna á í 17 ár. Ég er að tala um villta vestrið sem einkennir deitmenninguna. Sumir halda að þetta sé einskorðað við Ísland. Við kunnum ekki að deita, höfum ekki þessa menningu. Elskurnar mínar, leyfið mér að leiðrétta þennan misskiling á núlleinni. Ég hef farið á verri deit í Bandaríkjunum og Barcelona heldur en á Íslandi. Þetta er miklu meira tengt því að fólk veit ekkert hvað það vill. Þú skráir þig á deitsíður að leita að einhverju. Það er mjög óskilgreind leit og svo ertu rosalega hissa að deitið gekk ekkert svakalega vel. Ég meina, þið voruð sko búin að spjalla saman í nokkra klukkutíma áður en þið hittust. Ég held að vandamálið sé hvað þú ert fljótur að finna næsta. Þetta er bara eitt klikk til hægri og þá poppar upp nýr og spennandi einstaklingur. Þú þarft ekkert að hafa fyrir þessu, það er alltaf nýr valmöguleiki handan við hornið. Ég hef ekki tölu á því hversu oft ég hef verið „ghostuð“. Hvað er það eiginlega? Það er þegar þú ert jafnvel í miðju samtali við einhvern á Tinder eða Facebook og svo er viðkomandi horfinn. Þá kannski sagðir þú eitthvað sem viðkomandi líkaði ekki eða hann var farinn að tala við aðra manneskju sem virkaði áhugaverðari þessa stundina og þér er hent eins og gömlu rusli. Fyrstu skiptin sem ég lenti í þessu tók ég þessu mjög persónulega. Ég velti mér lengi upp úr því hvað ég hefði gert rangt. Hvað ég hefði getað gert betur. Svo áttaði ég mig á því að vandamálið lá ekki hjá mér heldur hjá þeim sem ghostar. Kurteisi kostar nefnilega ekki neitt og ef viðkomandi hefur ekki lært grunnmannasiði eins og að kveðja þá var það nú frekar mikil heppni að þurfa ekki að kynnast honum betur.

Deitráðgjafar, allt er nú til

Viktor Logi sonur minn er algjör snillingur og svo miklu eldri en kennitalan hans segir til um. Hann benti mér á að fylgja Matthew Hussey á Instagram. Hann væri ansi snjall. Mér leist nú ekkert á blikuna. Þetta var ungur maður sem gæti nú ekki vitað mikið um þarfir miðaldra kvenna. Það kom fljótlega í ljós ég var með bullandi aldursfordóma og Matthew vissi alveg hvað hann söng. Eitt sem sat eftir hjá mér var að hann teiknaði fullt af mönnum á töflu, segjum 50 og svo dró hann hring utan um einn í miðjunni. Hann sagði, þinn maður er númer 22. Vandamálið er að þú ert svo upptekin af því að gefa manni 1, 2 og 3 sjens og reyna að láta það ganga að þú finnur aldrei mann númer 22. Mér fannst þetta frábært ráð og virkaði mjög tímasparandi. Ég setti mér því nokkrar grunnreglur og kvikaði ekki frá þeim. Það er mögulegt að einhverjum hafi fundist þær full harkalegar en þetta er mitt líf ekki satt og mínar reglur. Annað sem Matthew sagði var, ekkert svar er svar. Ef þú ert hunsuð, skilaboðunum þínum ekki svarað þá eru það mjög skýr skilaboð. Mér fannst þetta ansi gott ráð. Því ef þú ert hunsuð á meðan þið eruð að kynnast hvernig verður þetta þá í framtíðinni?

Ég ákvað því að hlusta gífurlega vel á mína innri rödd. Það er hægt að spara sér svo mikinn tíma og sárindi með því að hlusta á sína innri rödd. Ég bjó til spurningar sem ég spurði alla og ýtti á ákveðna takka. Ég ræddi þetta við einn ráðgjafa þegar ég var í lofthræðslumeðferðinni. Hún sagði, Ásdís þú veist hvað þú vilt og það er frábært. Það gerir það líka að verkum að potturinn þinn er kannski minni fyrir vikið en hann er þinn pottur.

Er hægt að setja ástina í excelskjal?

Þegar ég skráði mig í Landvættaprógrammið vissi ég að ég þyrfti að setja allan minn tíma og orku í æfingar, vinnu og krakkana og setti mig því í sjálfskipað deitbann. Planið var svo að klára Landvættina í ágúst 2019 og einhenda mér þá í það verkefni að finna mér kærasta.  Það vildi nú ekki betur til en að ég fór í gifs og datt út úr Landvættum tímabundið. Nú voru góð ráð dýr. Mér fannst full langt í ágúst 2020 þegar ég myndi klára Landvættina og meira að segja mér fannst manískt að vera í tveggja ára deitbanni þannig að ég ákvað að breyta planinu. Kvöldið fyrir Bláalóns þrautina ákvað ég að núna væri kominn tími á að finna kærastann.

Ég ákvað að nýta mér tæknina sem Darren Hardy kenndi mér. Þegar hann var tilbúinn að finna sér konu þá skrifaði hann fjörutíu blaðsíða ritgerð þar sem hann lýsti í smáatriðum hvernig drauma konan hans væri. Síðan skrifaði hann aðra eins ritgerð um hvernig maður hann þurfti að vera til að verðskulda hana. Ég var fyrir löngu búin að finna út hvernig kona ég þurfti að verða. Þegar ég byrjaði að deita þá var ég fljót að átta mig á því að mennirnir sem ég hafði áhuga á að deita voru í meistaradeildinni og ég var í annari deild. Það var því um tvennt að velja. Bæta mig og fara upp um tvær deildir eða lækka standardinn. Það var ekkert annað í boði en að uppfæra mig um tvær deildir. Ég var einfaldlega ekki tilbúin að lækka standardinn, ég vissi að ég yrði að bæta mig. Kalt mat, það eru ekkert svakalega margir menn sem nenna að deita litlar, feitar, reiðar, pirraðar og fúlar konur, reyndar var hæðin líklega ekki vandamálið. Ég tók tvö ár í það verkefni.  Þar sem ég lá þarna handleggsbrotin upp í sófa var ekki sjens að ég nennti að fara að skrifa einhverja fjörutíu blaðsíðna ritgerð með annari hendinni. Ég ákvað því að gera styttri útgáfuna. Ég bjó til lista með tíu atriðum sem framtíðarmaðurinn minn byggi yfir. Ég setti niður útlit, hæð, karaktereinkenni og áhugamál og hvers vegna þessi atriði skiptu mig máli. Ég útbjó síðan Tinderaðgang sem þessi maður átti að finna og viti menn (og konur) það tók viku að tengja okkur saman.

Ég hitti eina kunningakonu mína fyrir nokkrum mánuðum og hún spurði hvernig gengi að deita. Ég sagðist vera búin að finna kærastann. Hún leit á mig og brosti og sagði, „ég sá listann þinn og ég verð að viðurkenna að ég hafði ekki nokkra trú á því að þú myndir finna hann. Listinn var svo svakalega nákvæmur“. Það er akkúrat galdurinn. Ef þú veist hvað þú vilt og hvers vegna þá er svo auðvelt að finna það. Hinsvegar ef þú veist ekkert að hverju þú ert að leita þá veistu ekki einu sinni alltaf þegar þú finnur það sem þú leitar að og tækifærið rennur þér úr greipum.

Það er ótrúlega órómantísk að skilgreina draumamanninn

„Ásdís, þú getur ekki gert þetta. Þú getur ekki skilgreint hvernig mann þú vilt. Þetta kemur þegar það kemur. Hvað ætlar þú eiginlega að gera ef þú verður óvart ástfangin og hann passar ekki við listann þinn“? Óvart ástfangin, hvernig gerist það? Labbar kona inn á einhvern stað, sér þar ókunnugan mann og verður svo hugfangin að hún kemur ekki upp einu orði. Seinna um daginn fattar hún svo að hún er svo ástfangin að það kemst ekkert annað að? Ég var aðeins ósammála því að þú verðir óvart ástfangin. Ég svaraði einfaldlega. „Ég er með ákveðin prinsip sem ég ætla ekki að gefa eftir og ég verð búin að greina það á fyrstu 5 mínútunum hvort að hann komi til greina. Ásdís, þú getur ekki spurt svona beinna spurninga. Jú, jú, ég get það alveg. Þetta er nefnilega mitt líf og ég ræð hvernig ég lifi því og hvað skiptir mig máli“.

Það er eitthvað tabú við þarfagreina makann. Það á að gerast að sjálfu sér. Ef þú ætlar að verða viðskiptafræðingur þá ferðu í menntaskóla og svo velur þú þér háskóla sem kennir viðskiptafræði. Þetta er mjög einfalt plan. Hins vegar ef þú ætlar að finna þér maka, einhvern þú átt jafnvel eftir að eignast börn með og eyða ævinni með, þá er það eitthvað sem á að gerast að sjálfu sér, eitthvað spontant ævintýri, fullt af bleikum búbblum og rómantík. Það þótti mjög ósmart að ætla að þarfagreina hann.

Þegar þú ert komin á sextugsaldur þá veistu nákvæmlega hvað þú vilt eða frekar hvað þú vilt ekki. Ég vildi ekki fara aftur í leikskólapakkann. Ég vildi ekki mikinn aldursmun. Ég vildi ekki einu sinni mikinn hæðarmun. Mér fannst skipta máli að hann væri sjálfstætt starfandi og ætti því auðvelt með að setja sig í mín spor varðandi vinnu og álag tengt henni. Þannig að ég bjó til minn draumalista. Hvað skiptir mig máli. Hvaða kröfur geri ég til mín og til hans. Ég þurfti ekki að fara í samband til að drepa tímann. Ég hafði meira en nóg að gera. Ég sá fljótt að það yrðu að vera einhver sameiginleg áhugamál til að þetta gengi upp, ég stunda fjórar íþróttir. Hann yrði að stunda eina af þeim. Golfarar hentuðu því ekki. Yndislegt fólk en eru alltaf úti á golfvelli þar sem ég er ekki. Þú getur alveg tekið upp golf er það ekki? Jú pottþétt, eftir svona tíu ár þegar ég er búin að minnka við mig vinnu. Þannig að ég sendi öllum sömu fjórar spurningarnar.

Hvað áttu mörg börn?

Hvað eru þau gömul?

Við hvað starfar þú?

Hvaða hreyfingu stundar þú?

Eins og ég sagði, tekur fimm mínútur ef þú veist að hverju þú leitar.

 

Hvernig veistu samt að hann er sá rétti?

Þú veist aldrei hvort að þetta sé sá eini rétti. Þú verður stundum að stökkva út í djúpu laugina, sleppa axlaböndunum og beltinu og björgunarhringnum og láta vaða. Hætta að velta þér upp úr hvað ef og bara njóta þess sem lífið býður uppá.

Hægt er að fylgjast með vegferð Ásdísar á instagram: asdisoskvals

 

 

 

 

 


Að vera sérfræðingur í áhyggjum!

 

Það er ótrúlegt að það séu ekki nema rúm 2 ár síðan ég sökk niður í mitt dýpsta hyldýpi og ég sá ekki framúr neinu.
2 ár frá því að ég lá heima í fósturstellingu.
2 ár síðan ég náði ekki andanum.
2 ár síðan ég gat ekki hugsað skýrt. 
2 ár frá því að ég sökk neðar en ég hélt að ég gæti sokkið. 
2 ár síðan ég tróð marvaða og náði ekki til botns.

Hvernig er hægt að missa svona algjörlega tökin og sjá ekki fram úr neinu? Ég hef hugsað töluvert um það og þegar ég lít til baka þá sé ég að ég var búin að keyra ansi lengi á hnefanum. Ég held hreinlega síðan í Hruninu. Það er svakalega langur tími. Ég náði aldrei að núllstilla mig. Alltaf þegar ég hélt að ég væri komin með allt á hreinu kom nýtt áfall eða nýtt vesen. Ég stoppaði aldrei til að ná áttum og spyrja mig hvað skipti máli. Hvað vil ég og hvert er ég að fara? Ég leysti öll mín mál með því að fara mína leið og þeir sem voru ekki á sömu línu og ég, þeir gátu bara átt sig. Ég þurfti ekkert á þeim að halda. Ég vissi hvað var best fyrir mig og ég þurfti ekki að leita mér aðstoðar. Það eru aumingjar sem leita sér aðstoðar.  Ég er ekki aumingi.

Þegar kemur að skuldadögum

Ég keyrði á vegginn af fullum þunga einn laugardag í janúar 2018. Þetta var búin að vera erfið vinna í vikunni og ég var þreytt og punkteruð. Þetta var samt eðlilegt ástand fyrir mig.  Ég var þreytt, vann of mikið og hugsaði lítið um heilsuna og sjálfa mig.  Ég kom heim og allt í einu fann ég að ég náði ekki andanum.  Ég lagðist upp í sófa, ég fékk öran  hjartslátt og ég ofandaði á sama tíma og ég barðist við að ná andanum.  Ég hágrét án þess að vita af hverju.  Ég varð skíthrædd og hélt að ég væri að fá hjartaáfall.  Næstu vikur á eftir voru gífurlega erfiðar.  Ég barðist við að fara í vinnuna, að halda haus, að vera til staðar. Mér leið best undir sæng.  Ég missti af ótal viðburðum því ég treysti mér ekki til að mæta.  Ég las dánartilkynningar í Fréttablaðinu því ég öfundaði fólkið sem var þarna.  Þetta var svo rólegur og afslappur staður og laus við öll vandamál. 

Frá botninum er besta spyrnan

Ég fór í gegnum nokkra mánuði af algjöru kerfishruni. Ég var hvergi til staðar, hvorki í vinnunni né fyrir börnin mín. Það kemur samt alltaf að því að þú nærð botninum. Ég náði mínum botni þegar ég missti af foreldrasýningu í fimleikum. Dóttir mín hljóp til mín og spurði, hvar ég hefði verið. Ég hefði verið eina mamman sem hefði ekki mætt. Ég skýldi mér á bakvið vinnu.  Það er svo mikið að gera hjá mömmu í vinnunni. Þetta er svo góður frasi.  Í staðinn fyrir að taka á vandamálunum þá drekkir fólk sér í vinnu.  Gallinn er samt að þú kemur litlu í verk þegar þú ert á þessum stað.  Þú vinnur og vinnur en afköstin og framlegðin eru í engu samræmi við það. Á endanum náði ég botninum og þar með spyrnunni.  Ég vissi að ég var að sigla í kaf og ég yrði að ná tökum á lífinu. Ég er einstæð móðir og er að reka fyrirtæki og það er enginn sem reddar mér. Ég var búin að ganga í gegnum tímabil þar sem ég svaf gífurlega illa. Ég tók sopril á kvöldin til að róa mig og reyna að ná góðum nætursvefni. Ég hef ekki tölu á skiptunum þegar ég vaknaði um miðja nótt og gat ekki sofið áfram. Að vera stressuð, þreytt, úttauguð og svefnlaus er banvæn blanda. 

Hlaupin bjarga geðheilsunni

Í lok apríl 2018 byrjaði ég að hlaupa. Það hafði alltaf blundað í mér að hlaupa 10 km í Reykjavíkur maraþoninu og ég sótti app sem var hlaupaforrit. Þegar ég byrjaði að hlaupa þá byrjaði ég að ná tökum á lífinu og sjálfri mér. Það er eitthvað við það að fara út og anda að sér fersku lofti.  Ég fór að sofa betur og smátt og smátt fór mér að líða betur og betur. Ég man ennþá þá tilfinningu þegar ég gat litið í spegil í fyrsta skipti og sagt við mig. Mér finnst þú frábær og ég er virkilega stolt af þér og svo ertu bara fjandi sæt líka. 

Sérfræðingur í ofhugsun

Þetta kvíðakast var samt ekki fyrsta panikkið mitt. Ég þjáðist af flughræðslu, lofthræðslu og innilokunarkennd. Þetta með flughræðsluna kom mér í opna skjöldu. Ég hafði alltaf notið þess að fljúga og flogið með allskonar rellum hér og þar um heiminn. Svo var það einn vetur að ég er að fljúga heim og ein flugfreyjan byrjar að kalla upp hvort að það sé læknir eða hjúkrunarfræðingur um borð. Þá hafði aðili sem sat fyrir framan mig orðið svona rosalega flughræddur. Það var fínt flug og notalegt en þetta sat í mér. Í lendingunni lentum við í mikilli ókyrrð og þetta varð eitt óþægilegasta flug sem ég hef farið í. Ég spáði ekkert meira í það fyrr en næst þegar ég fór í flug.  Þá byrjuðu óþægindin um leið og ég kom inn í vélina.  Ég settist inn og mér fannst allt þrengja að mér. Ég byrjaði að ofanda og ég skildi ekkert í því hvað var í gangi. Lét mig hafa þetta og reyndi að slaka á. Þarna bölvaði ég stundum að drekka ekki, því það er ekki hægt að róa taugarnar með sódavatni. Þetta ágerðist svo með árunum.  Ég fékk róandi hjá homopata sem sló heilmikið á einkennin en samt aldrei nóg til að mér liði vel. Ég stressaðist upp við að heyra flugmanninn tilkynna að það væri möguleg ókyrrð framundan og stundum var ég örþreytt eftir flugið. Það tekur á að vera uppspennt í nokkra klukkutíma. Þegar ég var komin á þann stað að ég treysti mér ekki til að fljúga lengur  en í 2-3 tíma ákvað ég að leita mér fagaðstoðar. Ég fór á flughræðslunámskeið hjá Icelandair og læknaðist að fullu. Ég hef lent í allskonar ókyrrð eftir námskeiðið og aldrei verið neitt mál.

Innilokunarkenndin fór eiginlega að mestu af sjálfu sér en lofthræðslan var hins vegar stærra og meira mál. Sumarið 2006 fórum við upp í Holmenkollen sem er skíðastökkpallur í Osló til að njóta útsýnisins. Ég fór upp og ég byrjaði að ofanda og fá öran hjartslátt. Mér hafði aldrei liðið svona illa á ævinni. Ég bakkaði niður í einhverjum tryllingi og vissi ekki alveg hvað var í gangi. Ég hafði oft verið smá lofthrædd, sérstaklega í fjallgöngum en þarna magnaðist hún heldur betur upp. Með árunum vatt hún svo mikið upp á sig að ég hætti að keyra út á land. Ég forðaðist aðstæður sem gætu valdið lofthræðslu eins og fjallgöngur og að fara út á svalir.  Þetta gekk ágætlega þar til ég byrjaði að æfa með Landvættum og ég setti mig í allskonar aðstæður þar sem ég þurfti að taka á lofthræðslunni. Að lokum var ég komin á þann stað að annað hvort myndi ég fara í meðferð eða ég myndi detta út úr programminu og gefast upp.  Ég valdi meðferðina og sé ekki eftir því.

Ókosturinn við ofhugsun

Í dag er ég mjög þakklát fyrir að hafa náð tökum á lífi mínu því gamla ég væri ekki að höndla þetta ástand í dag. Ég myndi ofhugsa allt saman og væri búin að bræða úr internetinu með því að googla allt sem ég gæti um Krónuvírusinn, smitleiðir, áhættuhópa og efnahagslegar afleiðingar. Ég myndi ekki sofa á nóttunni þrátt fyrir að innst inni vissi ég að 99% af því sem er í gangi er eitthvað sem ég hef enga stjórn á.  Ég væri á fullu að hugsa, hvað ef .... hvað ef þetta gerist, hvað ef þessi smitast, hvað ef ég ... Ég var sérfræðingur í Hvað Ef.

Málið er að hlutirnir gerast óháð því hvort að við höfum áhyggjur af því eða ekki. Við erum í óvissutímum. Við vitum ekki hvað er framundan eða hvað ástandið mun vara lengi. Það er eðlilegt að hafa áhyggjur og vera stressaður en þegar ég hugsa um allar andvökunæturnar sem ég átti útaf hlutum sem ég gat ekki stjórnað þá hefði verið betra að sleppa takinu. Kvíðin yfir einhverju sem kannski myndi gerast. Hversu oft gerðist það síðan ekki?

Gamla ég, hefði brugðist svona við. Guð minn góður ef þetta gerist þá getur þetta gerst. Ef þetta gerist af því að þetta gæti gerst og þá er þetta líkleg niðurstaða og svo yrði ég í einhverju panik mode að reyna að redda einhverju sem gæti mögulega gerst einhvern tímann í framtíðinni. Þetta er algjörlega galið. Rökhugsun og ofhugsun eiga nefninlega litla samleið.

Að læra að sleppa takinu

Róm var ekki byggð á einum degi. Það var meðvituð ákvörðun hjá mér að sleppa takinu. Það var gífurleg vinna, bæði sjálfsvinna og með sérfræðingum. Ég fór til sálfræðinga og það hjálpaði mér gífurlega mikið. Ég áttaði mig á því einn daginn að ég væri búin að missa hæfileikann á því að vera langrækin. Sagði við kærastann, “mikið svakalega varð ég pirruð þegar þú gerðir þetta”. Svo þurfti ég að stoppa og viðurkenna, “ég man ekkert hvað það var”. Mig rámaði í að það var eitthvað sem pirraði mig en ég mundi hins vegar ekkert hvað það var eða hvenær eða hvers vegna. Þetta fannst mér algjörlega frábært móment og ég nýt þess að lifa í núinu. Gamla ég var sérfræðingur í fortíðarþráhyggjur og ef það hefði verið keppt í langrækni og ofhugsun á Olympíuleikunum þá hefði ég fengið gull.

Ef það skiptir ekki máli eftir 5 ár ekki eyða meira en 5 mínútum í það

Ef þú hugsar til baka um öll skiptin sem þú ert búin að vera í taugaáfalli yfir einhverju.

Sambandinu sem gekk ekki upp.

Draumastarfinu sem þér var sagt upp.

Háskólanáminu sem þú féllst í.

5 árum seinna skiptir þetta ennþá máli? Ef ekki, hefði þá mátt koma í veg fyrir alla þessa vanlíðan? Þegar þú lendir í þessu þá er gott að muna að ekkert varir að eilífu. Auðvitað er drulluerfitt að vera fastur í hringiðunni og sjá enga leið út úr þessu en tíminn mun líða og fyrr en varir kemstu við upp á yfirborðið aftur.

Mín ráðlegging til allra sem sjá ekki alveg til lands í dag er að leita sér aðstoðar. Stundum er nóg að fara á trúnó með góðum vini. Stundum þarf meiri aðstoð. Hvað sem þú gerir ekki gera ekki neitt. Við erum öll með okkar vandamál og það versta sem við gerum okkur og þeim sem við elskum er að fara þetta á hnefanum. Það er líka gott að muna að það er ekki sjálfselska að setja sig og sína heilsu í fyrsta sæti. Ef þú ert ekki í lagi þá getur þú ekki verið til staðar fyrir aðra.

Ekki harka þetta af þér

Ég hugsa oft hvaða skilaboð við erum að senda krökkunum okkar, og þá sérstaklega litlu strákunum. Harkaðu þetta af þér, þetta er nú bara smá skeina. Þarna erum við að segja þeim hvernig þeir eiga að bregðast við og hvernig þeim á að líða. Ekki láta aðra segja þér hvernig þú átt að bregðast við. Kannski var þetta ekki óttinn við skeinuna. Kannski var þetta óttinn við að detta sem þurfti að bregðast við. Það sem háði mér var að mér fannst mín vandamál svo óttalega ómerkileg í stóra samhenginu. Ég þurfti sálfræðing til að segja mér að mínar upplifanir og mínar tilfinningar eru jafnréttháar og annara. Þegar við segjum við einhvern, harkaðu þetta af þér, það eru aðrir sem hafa það verra en þú, þá erum við að segja að þú eigir ekki rétt á því að líða á ákveðinn hátt. Það á enginn að segja þér hvernig þér á líða. Það sem ég hef lært er að setja mig í fyrsta sæti. Ef ég er þreytt þá hvíli ég mig. Ég sleppi æfingu ef ég er illa stemmd.

Það ber enginn ábyrgð á þinni hamingju nema þú sjálf. Ef þú vilt breytingar þá þurfa þær að byrja hjá þér.

Hægt er að fylgjast með vegferð Ásdísar á instagram 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband