30.12.2020 | 19:30
400 æfingar 2020
Þann 29. desember náði ég einu af markmiði ársins 2020 sem var að klára 400 æfingar á árinu.
Þegar ég setti þetta markmið þá fannst mér það ekki mikið mál. Ég var að æfa fyrir Landvættinn, fyrir þríþraut og hálfan járnkarl. Það er í raun og veru ómögulegt að taka mikið færri æfingar þegar þú ert með 4 mismunandi greinar og þær skipta allar jafnmiklu máli. Auk þess tók ég oft brick æfingu á bretti eftir innihjól þannig að suma daga voru þetta 3 æfingar. 400 æfingar á ári eru ekki nema 33 æfingar á mánuði þannig að ég vissi að þetta yrði lítið mál.
Svo fór að halla undan fæti. Covid kom og innihjólin og hlaupabrettin lokuðu. Sundlaugin lokaði. Þríþrautarmótið var fellt niður. Landvættarmótin féllu niður. Hálfi járnkarlinn féll niður. Ég datt á hjóli og lenti í gifsi. Sundlaugarnar og inniræktin lokuðu aftur. Ég íhugaði að lækka markmiðið en mér fannst það alltof mikil uppgjöf. Vildi ekki breyta markmiðinu heldur finna aðra leið að því.
Ég er í hreyfihóp með fasteignasölum í Bandaríkjunum og ákvað að leggja allt undir. Sendi á hópstjórann að ef ég klikkaði þá myndi ég borga henni 1.000 dollara. Þá var gengið minnir mig 145. Hún sendi til baka. Ég vil ekki þennan pening en ef þú klikkar þá greiði ég hann til samtaka sem þú hatar. Niðurstaðan var einföld. Ef ég kláraði ekki 400 æfingar myndu hvítir öfgamenn í Bandaríkjunum fá 1.000 dollara styrk. Í haust datt ég úr stuði og leyfði Covid að yfirtaka mig tímabundið. Reglulega sendi Cari mér skilaboð. Ásdís ég sé að þú ert aðeins á eftir. Hvernig gengur, ég vil ekki þurfa að greiða þessa peninga áfram. Þessi skilaboð voru það sem ég þurfti. Ég fór að bæta við kvöldgöngum og allt í einu datt ég í gírinn. Ég veit að ef ég hefði ekki haft þetta markmið hefði ég slakað mun meira á.
Hvaða æfingar er ég að stunda?
Gönguskíði, sund, hlaup, hjól, styrktaræfingar í Ultraform, Mobility hjá Sigursteini, sjósund og fjallgöngur. Svo finnst mér frábært að fara í léttar heilsubótargöngur inn á milli og hlusta á góða hljóðbók.
Gönguskíðin.
Ég kynntist þeim þegar ég skráði mig í Landvættina. Ég hélt í fávisku minni að gönguskíði væri létt stroll á jafnsléttu og þau væru því einfaldasta greinin af þeim öllum. Það kom í ljós að gönguskíði eru minnst á jafnsléttu. Þetta eru misskelfilegar brekkur og mikil tækni sem þarf að tileinka sér. Ég fór á byrjendanámskeið á Ísafirði með henni Hildu vinkonu og fékk nett áfall þegar ég var látin fara í gífurlega brattar brekkur fyrsta daginn. Þegar ég lít til baka þá voru þær líklega meira eins og Himmelbjerget þó að ég upplifði þær eins og Everest. Hef gaman að því að rifja upp þennan pistil. Mér finnst eins og það séu ljósár síðan hann var skrifaður en þetta var bara í fyrra.
Ég hafði smá áhyggjur af því að gönguskíðin mín væru ekki lengur passleg. Þau eru miðuð við þyngd og ég bað því Óskar í Sportval að kanna stöðuna. Ég hafði greinilega verið fyrirhyggjusöm þegar ég keypti þau þar sem þau voru fyrir 60-72 kg. og var því á fullkomnum skíðum núna. Óskar sagði að ef eitthvað þá myndi ég renna miklu betur í dag en í fyrra þannig að ég þakka fyrir að ég kann að fara í plóg í beygjur. Sumir vilja mögulega ekkert fara of hratt í allar beygjur.
Sundið
Elsku sundið. Hvað get ég sagt. Það tók mig 2 mánuði að geta synt 50 metra í einu. Í hvert skipti sem ég dett út þá tekur það mig ótrúlega langan tíma að ná upp fyrri færni. Fólk talar oft um vöðvaminni. Oft þegar fólk byrjar að æfa aftur eftir langa pásu þá er það ótrúlega fljótt að komast aftur í gamla gírinn. Vöðvarnir gleyma þessu aldrei. Mínir sundvöðvar eru með gullfiskaminni. Þeir kannast voðalega lítið við hreyfingar sem eru þó ekki nema nokkurra vikna gamlar. Ég tók því þá ákvörðun að sætta mig við að ég myndi aldrei synda mjög hratt. Ég get hins vegar synt lengi og það er minn styrkur. Ég er svo heppin að ég ætla aldrei að verða afreksíþróttakona heldur er minn fókus á að bæta mig jafnt og þétt. Reyndar tel ég að ég eigi góða möguleika á að vinna aldursflokkamótin þegar ég verð 70 ára og allir aðrir eru farnir að spila golf. Það er amk mitt plan í dag. Allt um hvernig gekk að læra skriðsund og fleira
Hlaup
Þegar ég skráði mig í Landvættina þá var hlaup í raun það eina sem ég kunni. Ég hafði mest hlaupið 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst 2018 og hafði byrjað að hlaupa í maí 2018. Þá var formið ekki betra en svo að ég gat hlaupið á milli ljósastaura. Það er furðulegt að líta til baka og sjá hversu langt er hægt að komast á stuttum tíma. Ári eftir að ég byrjaði að hlaupa kláraði ég 32 km utanvegahlaup sem var Jökulsárhlaupið og stuttu áður hafði ég hlaupið bæði Þorvaldsdalsskokkið sem og Fimmvörðuhálsinn sem eru 25 km. Í dag elska ég að hlaupa og hlaupin eru stór hluti af mér. Ef ég mætti bara velja eina grein til að stunda þá yrðu það hlaupin. Samt hélt ég lengi vel að ég hataði hlaup.
Hjól
Ég var svo heppin að skrá mig í hjólreiðadeild Breiðabliks og það hefur alltaf verið ein mín mesta gæfa þegar kemur að hreyfingu. Hjólreiðadeildin er stútfull af frábæru fólki sem er alltaf tilbúið að leiðbeina og hjálpa. Það er einhvern veginn þannig að þeir sem eru betri en þú eru alltaf tilbúnir að aðstoða. Þetta gekk samt ekki áfallalaust. Ég byrjaði á innihjólaæfingum og það tók mig ca mánuð að læra að festa hjólaskóna á hjólið, stilla hjólið, læra í hverju á ekki að vera í hjólabuxunum og sittlítið af hverju. Smátt og smátt kom svo færnin. Síðan fór ég á útiæfingar og komst að því að mér finnst gífurlega gaman að hjóla, bæði á racer og fjallahjóli.
Ultraform
Eins og með margt annað frábært í mínu lífi þá kynntist ég Ultraform í gegnum Halldóru Gyðu vinkonu. Hún hefur verið óþrjótandi viskubrunnur og aðstoðað mig gífurlega mikið með hreyfingu. Ég væri ekki komin eins langt og ég er komin án hennar. Ég vissi að ég yrði að fara að bæta við styrk en var ekki alveg búin að finna hilluna mína. Eftir fyrsta tímann hjá Sigurjóni Erni þá vissi ég að ég var komin á mína hillu. Þessir tímar eru sambland af styrk og úthaldi og ég fann gífurlegan mun á mér eftir nokkrar vikur og það sást m.a.s. glitta í upphandleggsvöðva. Eftir að líkamsræktarstöðvunum var lokað þá kom Ultraform til okkar. Sigurjón lánaði allar græjur til meðlima og heldur úti fjarþjálfun á Facebook.
Sjósund
Þarna er ég algjör grænjaxl og á ansi mikið ólært hér. Ég fór samt í Nauthólsvík nokkrum sinnum í fyrra og náði mest að vera held ég 30 mínútur í sjónum. Fór líka einu sinni í Elliðavatn með vinum og fannst þetta gífurlega gaman. Ég ætla ð vera duglegri á næsta ári enda þarf ég þess til að massa Urriðavatnssundið. Ég þurfti að endurnýja sundgleraugun og setti inn óformlega skoðanakönnun meðal sundfélaga og MP gleraugun sem fást í Hafsport fengu flest atkvæði. Þegar ég hef lítið vit á hlutunum þá fer ég eftir meirihluta. Ég skellti mér því í Hafsport og endaði á því að kaupa mér forláta gleraugu sem nýtast líka í sjó- og vatnasundi. Þarna fékkst líka allskonar annað dót fyrir sjósund og ég endaði með forláta skó og hanska og flotholt. Það var líka til annað flotholt sem nýtist í kvöldsund. Mér fannst engin þörf á því. Ég er ekki týpan sem fer í kvöldsund nema það sé albjart. Ég þurfti einu sinni að fara í kvöldköfun þegar ég var að læra köfun í Honduras og það dugði mér út ævina. Ég ræddi þetta aðeins við Þorvald eiganda Hafsports, hann sagði á móti að honum finndist kvöldköfun gífurlega skemmtileg. Þá kom í ljós að við vorum einmitt búin að kafa næstum því jafnlengi. Eini munurinn á okkur var að hann lærði köfun 1992 og er búin að kafa viðstöðulaust síðan. Ég lærði köfun 1993 og hef ekki kafað eftir það.
Fjallgöngur
Ég er farin að elska fjallgöngur. Einu sinni langaði mig að elska fjallgöngur en formið var ekki að vinna með mér. Það besta sem ég átti var að komast upp að merki 2 á Esjunni. Einnig var lofthræðslan að hamla mér gífurlega. Eftir að ég komst í gott form og fór í dáleiðslumeðferð gegn lofthræðslu hef ég lært að elska fjallgöngur og í sumar fór ég m.a. á Vífilsfell og Móskarðshnúka sem var eitthvað sem gamla ég hefði aldrei getað.
Mín eigins þríþraut
Ég var skráð í Ólympíska þríþraut og hálfan járnkarl á árinu. Til að vera alveg hreinskilin þá varð ég flökurt þegar ég skráði mig í þessar þrautir en mér varð líka flökurt fyrir Þorvaldsdalsskokkið, Fimmvörðuhálsinn, Bláalónið, Urriðavatnið, Fossavatnsgönguna og meira að segja 5 km Suzukihlaupið og 10 km hlaupið í Reykjavíkurmaraþonið. Það má líklega segja í hvert skipti sem ég stækkaði þægindarammann þá byrjaði það með ógleði og HvaðíAnd...ErÉgAðGera. Alltaf hef ég þó lifað af og alltaf hefur þetta verið gaman. Svo voru þessar þrautir blásnar af. Ég fékk því þessa skyndihugmynd að halda mitt eigins þríþrautarmót milli jóla og nýárs. Ég kynnti mér þrautina og sá að þetta væru 1.500 m skriðsund, 40 km hjól og 10 km hlaup. Ég byrjaði á sundinu. Tíminn var hörmulegur en ég kláraði sundið og ákvað að botninum væri náð tímalega séð (sagði það líka síðast þegar ég synti, einhvern tímann mun ég hafa rétt fyrir mér). Skellti mér svo heim og hjólaði 40 km á innihjólinu sem tók ca 90 mínútur. Að lokum hljóp ég 10 km. Þetta gekk vonum framar og ég verð að segja að ég var bara frekar montin af mér að hafa getað þetta. Allt í einu stækkaði þægindaramminn til muna og ekki minnkaði gleðin daginn eftir þegar ég vaknaði með engar harðsperrur eða óþægindi eftir þessar 3 æfingar. Það er einnig gaman að segja frá því að ég rústaði þessu móti.
Frelsið að keppa við sjálfa sig
Það er gífurlegt frelsi að vera eingöngu að keppa við sjálfa sig. Mér er alveg sama hvort að ég lendi í sæti 500 eða 250 af 600. Mín keppni snýst um líkama fyrir lífið og ég er búin að átta mig á því að þegar ég æfi á lágu álagi þá minnka ég líkurnar á álagsmeiðslum og veseni. Eitt það besta sem ég gerði fyrir mig á þessu ári var að fara í ástandsskoðun hjá Greenfit og fá minn persónulega æfingapúls. Ég var smá stund að fatta út á hvað hann gekk. Hilda vinkona fór líka og fékk sinn púls. Við áttum báðar að æfa á zone 2 og með svipaðan púls. Ég sagði: frábært, þá getum við æft saman. Hilda brosti og sagði. Það er ekki víst að þinn púls sé eins og minn þó að við séum með sömu tölur. Við Hilda vorum báðar á máladeild en stundum er hún aðeins klárari en ég þegar kemur að tölulegum upplýsingum tengdum íþróttum.
Hvað er ofþjálfun?
Margir hafa áhyggjur af því að ég æfi of mikið og ég skil það. Þetta virkar ansi mikið að taka 1-2 æfingar á dag, 6 daga vikunnar. Það sem er mikilvægt að hafa í huga er að ég er ekki afreksíþróttakona og hef engan metnað í að verða slík. Ég er því ekki að æfa með það markmið að ná einhverjum ofurtíma og sprengja mig til að ná þeim markmiðum. Ég held að ef ég væri að stefna að einhverjum árangri sem slíkum væri þetta miklu erfiðara. Mögulega væri ég búin að gefast upp þar sem ég verð aldrei á neinum topplistum og svekkelsið að vera búin að leggja gífurlega mikið á mig til þess eins að ná aldrei þeim árangri hefði mögulega yfirbugað mig. Þetta varð allt svo auðvelt þegar ég ákvað að mitt eina markmið væri að keppa við sjálfa mig og örbæta mig reglulega. Ég er með mitt plan en það er ekki meitlað í stein, heldur meira svo viðmið. Ef ég er þreytt þá hvíli ég aukadag. Hreyfing er mitt áhugamál og mér finnst þetta gífurlega gaman. Ég held samt að lykilinn liggi í lágu æfingaálagi. Ég fer í Mobility einu sinni í viku til að læra að beita mér rétt og gera teygjuæfingar. Ég fer líka reglulega í nudd og sjúkraþjálfun þannig að ég passa vel upp á líkamann. Ég hef verið gífurlega heppin og ekki lent í neinu hnjaski. Ég held að það stafi að hluta til að ég æfi á lágu álagi og svo hitt að mínir vöðvar eru ekkert svo mikið notaðir. Ég byrjaði að hreyfa mig af alvöru 2018 þannig að þeir eru bara tæplega 3ja ára í notkunaraldri.
Þegar kemur að hreyfingu þá er lykilinn að finna eitthvað sem þú elskar. Markmið og örbætingar virka fyrir mig. Trixið er að finna hvað virkar fyrir þig.
Hægt er að fylgjast með vegferð Ásdísar á instagram: asdisoskvals
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.12.2020 | 17:55
Hvað er heilsusmánun?
Til að vera alveg hreinskilin þá veit ég ekki alveg hvort að þetta orð sé til í íslenskri tungu eða hvort að ég sé að búa til nýyrði. Eins og með margt annað þá fer ég mínar leiðir.
Ég er búin að vera lengi á leiðinni að skrifa þennan pistil en núna get ég ekki lengur setið á mér. Áður en þú hugsar, óttalega er konan pirruð ætli hún sé að byrja á túr þá er svarið alls ekki. Fór í legnám 2016 og því laus við það leiðindavesen.
Alveg frá því að ég byrjaði að breyta um lífstíl hef ég fengið að heyra það reglulega hvað þetta séu miklar öfgar hjá mér og þetta sé kannski ekki svakalega góð hugmynd.
Ég hef ekki tölu á því hversu oft ég hef fengið vel meinandi athugasemdir sem byrja svona:
Ég ætla ekki að vera leiðinleg/ur EN
Nú er ég engin sérfræðingur EN
Þú mátt ekki fara framúr þér
Þú átt bara einn líkama
Er þetta ekki full öfgafullt hjá þér?
Er ekki betra að sníða sér stakk eftir vexti?
Það er gott að hafa á bakvið eyrað að þetta eru allt óumbeðnar athugasemdir frá vel meinandi aðilum. Svo eru það athugasemdirnar sem ég heyri útundan mér sem eru ennþá meira krassandi.
Hvað eru óumbeðnar athugasemdir?
Allar athugasemdir sem koma EKKI í kjölfarið á spurningu frá mér sem byrjar á HVAÐ FINNST ÞÉR?
Nokkrar klassískar eru:
Þú vaknar of snemma!
Þú sefur of lítið!
Þú æfir of mikið!
Er ekki komið nóg, þarftu að grennast meira?
Ég heyrði hins vegar aldrei neitt af neðantöldu þegar ég var 95 kg og stundaði enga hreyfingu:
Þú sefur of lengi!
Þú ferð of seint í rúmið!
Þú þarft að hreyfa þig meira!
Ætlar þú virkilega að borða þetta allt?
Er ekki nóg komið. Þarftu ekki að fara að gera eitthvað í þínum málum?
Hvers vegna gagnrýnir fólk frekar aktívan lífstíl og kjörþyngd frekar en kyrrsetu og ofþyngd?
Ég hef velt þessu fyrir mér alveg síðan ég breytti um lífstíl. Hvers vegna finnst mörgum þetta svona miklar öfgar hjá mér og hvers vegna þeim finnst þörf á því að hafa vit fyrir mér? Leiðbeina mér góðlátlega eingöngu af því að ég fer út úr þeirra þægindahring. Ég á vin sem er fallhlífastökkvari. Aldrei myndi það hvarfla að mér að benda honum á að fallhlífastökk geti verið mjög hættulegt bara af því að mér finnst það ógnvekjandi. Ég lít svo á að þetta sé hans líf og hans að taka ákvarðanir hvernig hann vill lifa því.
Froskurinn sem klifraði upp súluna
Ein uppáhaldsdæmisagan mín er af froskum sem bjuggu saman í þorpi. Í miðju þorpinu var há súla sem margir froskar höfðu reynt að klifra upp en aldrei tekist. Í hvert skipti sem einhver reyndi það söfnuðust allir froskarnir saman (gerðist pottþétt ekki 2020 enda voru þeir fleiri en 10) og hópurinn fór að viðra sína skoðun. Þú getur þetta aldrei, þetta er svakalega hátt, þú átt eftir að detta, ÞAÐ HEFUR ENGINN GETAÐ ÞETTA. Allir froskarnir sem reyndu duttu niður og hópurinn hafði sér fyrir sér. Hvers vegna að reyna? Það hefur enginn getað þetta. Einn daginn sáu froskarnir að lítill froskur var byrjaður að klífa súluna og þeir hófu upp sama sönginn. Aldrei þessu vant hélt litli froskurinn áfram að klífa og alveg sama hvað aðrir sögðu, hann hélt áfram. Hægt og rólega mjakaðist hann upp og loksins náði hann upp á topp. Þegar hann kom niður hópuðust froskarnir í kringum hann og vildu vita hvað leyndarmálið var. Hvers vegna gat hann það sem enginn annar gat? Þá kom í ljós að froskurinn var heyrnarlaus og gat því ekki heyrt fortölur annarra.
Eftir að ég ákvað að verða froskurinn og loka eyrunum fyrir óumbeðnum athugasemdum hefur allt gengið miklu betur. Ég þarf ekki lengur að velta mér upp úr þessu. Hvað ef þau hafa rétt fyrir sér, hvað ef ég get þetta ekki, hvað ef ég er að fara fram úr mér, hvað ef ég borða vitlaust, HVAÐ EF....
Það er átak að byrja á nýjum lífstíl
Ég ræði stundum við vini mína hversu þreytt ég er á þessum óumbeðnu athugasemdum. Að ég þurfi stöðugt að vera að réttlæta mitt líferni og mínar ákvarðanir fyrir öðrum. Þau segja yfirleitt. Það er einmitt svo flott hjá þér, þú svarar svo vel fyrir þig og stendur með þér. Já í dag geri ég það og í dag hefur þetta miklu minni áhrif á mig en samt í hvert skipti sem ég fæ svona óumbeðna athugasemd sest pínkuponsulítill efasemdarpúki á öxlina á mér og hvíslar. Hvað ef þau hafa rétt fyrir sér. Hvað ef segi ég á móti, ég reyni þá bara aftur og hristi hann af mér.
Hann var ekki alltaf svona lítill. Þegar ég byrjaði mína vegferð var hann stór og pattaralegur sem sligaði mig og öskraði að þau hefðu rétt fyrir sér, að ég gæti þetta pottþétt ekki. Ég var stútfull af efasemdum um hvað ég gæti og allt sem ég gerði efaðist ég. Þegar ég skráði mig í Landvættina þá vissi ég alveg að ég væri í ömurlegu formi en ég ræddi við nokkra. Sumum fannst þetta galin hugmynd en þeir sem höfðu gert þetta áður studdu mig. Arna Torfadóttir sagði þetta svo vel, ef þú vilt þetta getur þú það. Hilda vinkona sem hefur staðið eins og klettur með mér allan tímann sagði þetta er ekki auðvelt og þetta verður hellings vinna. Ég vissi það alveg. Hún sagði hins vegar aldrei, þú getur þetta ekki, þetta er of mikið fyrir þig.
Það er gífurlega mikið átak að hefja nýjan lífstíl og þeir sem fara þá leið þurfa á stuðningi að halda, ekki gagnrýni og niðurrifi.
Hættu að deila á Samfélagsmiðlana ef þú höndlar þetta ekki!
Jú, þetta er ágætispunktur. Ég nota mína samfélagsmiðla sem dagbók. Instagrammið mitt er dagbókin mín. Mér finnst gaman að sjá hvað ég var að gera fyrir ári og/eða í síðasta mánuði. Margir hafa samband við mig til að láta mig vita að þetta efni sé hvetjandi fyrir þá og mér þykir alltaf gífurlega vænt um það. Svo eru aðrir sem eru minna hrifnir og láta mig líka vita af því. Samfélagsmiðlar eru samt svo þægilegir að þeir eru valfrjálsir. Ef eitthvað efni pirrar fólk þá er best fyrir sálartetrið að hætta að skoða efnið.
Heilsusmánun vs fitusmánun
Í dag er viðurkennt að fitusmánun er ömurleg og mér finnst það mjög jákvætt framfaraskref. Hvers vegna er heilsusmánun þá í lagi? Hvers vegna er í lagi að gagnrýna fólk fyrir að lifa of heilbrigðum lífstíl (hvaða mælikvarði er í gangi og hver ákvað það) á meðan það er bannað að gagnrýna kyrrsetulífstíl?
Hvers vegna má gagnrýna fólk fyrir að vera of grannt á meðan það má ekki gagnrýna fyrir að vera of feitt?
Þú værir betri með aðeins meira utan á þér!
Ég er með allskonar vini á Facebook og ein setti inn mynd af sér á Facebook í nýja jólakjólnum. Þetta er kona sem er búin að vinna mikið í sér, taka til í sínu lífi bæði andlega og líkamlega og létta sig um tugi kílóa. Hún var stórglæsileg í kjólnum. Flestar athugasemdir sem hún fékk voru mjög jákvæðar og svo voru það þessar:
Stórglæsileg kona í grennri kantinum.
Ég bara verð að segja eins og er þá finnst mér þú Jóna mín þú vera flottari með smá utaná þér
Ef þessi kona hefði verið búin að bæta á sig tugum kílóa hefði einhverjum dottið í hug að kommenta. Fallegur kjóll en hann myndi fara þér betur ef þú værir ekki svona feit. Vonandi ekki, það sér hver heilvita maður og kona að það sé bæði meiðandi og særandi.Það gleymist oft að margir eru grannir að eðlisfari og geta ekki þyngt sig sama hvað þeir reyna. Svona athugasemdir eru alveg jafnsærandi hvort sem þú ert grannur eða ekki.
Passaðu þig að hverfa ekki!
Eftir að ég grenntist hef ég ekki tölu á því hversu oft ég heyrt Passaðu þig á því að hverfa ekki. Hvert heldur fólk að ég hverfi? Að ég þekki Harry Potter og hann hafi lánað mér huliðsskikkjuna sína og ég geti því horfið að vild. Hvað þýðir eiginlega ekki hverfa? Get ég orðið svo mjó að ég gufi upp einn daginn? Getur það gerst að ég verði svo létt að ég verði eins og biðukolla og í næstu vindkviðu muni ég fjúka út í buskann.
Ég las einu sinni bók um mann sem fann upp ferðaklefa. Þetta var algjör snilld og hefði nýst vel í ár. Þú fórst inn í svona símaklefa, valdir staðsetningu og svo varstu færður þangað á ljóshraða. Flugvélar urðu óþarfar. Svo dag einn fór fólk að hverfa í orðsins fyllstu merkingu út um allan heim. Það sat kannski við matarborðið sitt og hvarf. Þegar ferðaklefarnir voru rannsakaðir kom í ljós að við hverja ferð var í raun búið til ljósrit af manneskjunni og frumritið eyðilagðist. Ljósritin þoldu bara ákveðin fjölda afrita og svo urðu þau ónýt. Kannski er fólk að segja að ég sé ljósrit?
Ég hef meira að segja fengið að heyra. Þú mátt nú alls ekki missa meira, frekar að þú þyrftir að bæta aðeins á þig. Það myndi líklega einfalda lífið til muna ef það væri hægt að búa til einn alheimsstaðal sem við pössum öll inn í.
Hvað má þá segja?
Þessi setning, ef þú hefur ekkert jákvætt að segja er betra að þegja á alltaf við, ekki bara þegar þér hentar. Til að auðvelda þetta eru hér nokkrar æfingar.Ef þér finnst setningin óviðeigandi með of þungur eða of feitur þá er líka óviðeigandi að nota of léttur eða of grannur.
Tökum dæmi. Þú verður að borða meira, þú ert orðin alltof grannur er jafnóviðeigandi og þú verður að borða minna þú ert orðinn alltof feitur.
Þú mátt ekki hverfa / Þú mátt ekki springa úr spiki
Ætlar þú ekki að fá þér meira? / Ætlar þú virkilega að borða allt þetta?
Þú hreyfir þig alltof mikið / Þú verður að hreyfa þig meira
Mér finnst þú fallegri með meira utan á þér / Þú værir fallegri ef þú værir ekki svona feit
Þessi kjóll færi þér betur ef þú værir ekki svona grönn / þessi kjóll færi þér betur ef þú værir ekki svona feit
Aðgát skal höfð í nærveru sálar gildir alltaf óháð líkamsþyngd. Líkamsvirðing er fyrir alla ekki suma.
Of aktíft fólk, pínu óþolandi ekki satt?
Ég þekki marga sem eru komnir yfir sextugt og eru í gífurlega góðu formi. Svo góðu að ég lít á þau sem mínar fyrirmyndir. Hvernig ég vil verða þegar ég verð sextug. Ég ræddi þetta við eina konu og ég sagði henni hvað mér finndist hún frábær fyrirmynd. Þá sagði hún: ég er nú eiginlega hætt að deila því sem ég geri á Facebook þar sem ég fæ svo mikla gagnrýni á alla þessa hreyfingu. Hvað er málið með það? Hefur einhver fengið gagnrýni fyrir að setja inn of margar myndir í notalegheitum, of mörg matarboð, aðeins að tríta sig, upp í bústað að slaka sér. Hinsvegar ef þú setur inn of margar hreyfimyndir þá færðu skammir? Þarf ekki eitthvað að skoða þetta?
Hver er munurinn á því að smána mig fyrir að hreyfa mig of mikið eða smána mig fyrir að hreyfa mig ekki neitt?
Hvers vegna er það viðurkennt að það sé í lagi að tríta sig smá (mjög loðin þessi skilgreining á smá) en það sé öfgafullt að borða ekki sykur.
Það þarf að njóta. Bolludagurinn kemur bara einu sinni á ári. Líka afmælið mitt, afmæli allra hinna sem ég er boðin í, páskarnir og páskaeggin, aðventan, jólaboðin, jólamaturinn, konudagurinn, bóndadagurinn, 17. júní og svo yndislega sumarið með öllum sínum grillveislum og hittingi.
Ef ég hefði hlustað á allar úrtöluraddirnar þegar ég var að byrja að hreyfa mig og breyta um mataræði þá væri ég ekki búin að ná þeim árangri sem ég hef náð í dag. Líklega hefði ég gefist upp eina ferðina enn og væri ennþá 95 kg. sófakartafla nema mögulega væri ég aðeins þyngri.
Hvernig væri að við myndum leyfa öllum að breiða út sína vængi og fljúga eins hátt og þeir vilja, ekki bara þeim sem fljúga innan þíns þægindaramma.
Það hafa allir rétt á að vera þeir sjálfir
Mig langar að ljúka þessum pistli með orðum Erlu Gerðar Sveinsdóttur læknis.
Heilsusmánun er frábært nýyrði en reyndar sorglegt að það þurfi að vera til.
Holdafar fólks er ekki eitthvað sem öðrum kemur við - i hvaða átt sem er.
Sama gildir um lífsstíl. Það er aldrei hægt að gera svo öllum líki og ekki þess virði að reyna það.
Kúnstin er að finna það sem hentar okkur sjálfum á hverjum tíma og standa með sjálfum sér.
Mikilvægt er að geta rætt sitt holdafar og lífsstíl við fagfólk í heilbrigðiskerfinu og fengið góð ráð sem veitt eru af virðingu fyrir vali hvers einstaklings.
Því miður er enn að finna fordóma og vanþekkingu í samfélaginu sem einnig finnst sumstaðar innan heilbrigðiskerfisins en ég er bjartsýn á að með aukinni þekkingu heyri það sögunni til.
Sýnum okkur sjálfum og hvort öðru virðingu.
Erla Gerður Sveinsdóttir, læknir
Hægt er að fylgjast með vegferð Ásdísar á instagram: asdisoskvals
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)